Beau og “bróðir” hans hvopurinn Theo eru án efa krúttlegasta parið á Instagram um þessar mundir.
Mamma Beau, Jessica Shyba, tekur alltaf myndir af þeim félögum þegar þeir leggja sig saman á daginn og útkoman er eitt það fallegasta sem ég hef séð!
Theo kom til fjölskyldunnar í nóvember. Eftir að hann kom inn á heimilið mynduðu þeir tveir sérstakt samband og eru bestu vinir. Theo gat ekki hugsað sér að sofa einn og vældi alla daga eftir að hann kom til fjölskyldunnar en eftir að hann fékk að kúra við hlið Beau þá hefur ekki heyrst í honum. Þess má einnig geta að þeir eru ekki bara góðir saman þegar þeir taka sér blund heldur leika þeir sér saman alla daga.
Það er óhætt að segja að þessir tveir séu bestu vinir og það sem þeir eiga saman er svo fallegt! Skoðaðu myndirnar af Theo og Beau hér að neðan. Hér getur þú séð Instagram síðu Jessicu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig