Við þekkjum það flest að fá óumbeðnar vinabeiðnir á Facebook frá fólki sem við þekkjum lítið eða bara ekki neitt.
Húmoristinn Ryan Roy tók þetta skrefinu lengra þegar hann bjó til prófílmyndir af sjálfum sér sem voru eftirhermur af þeim sem hann sendi vinabeiðnir.
Hann gekk svo langt að redda sér hárkollu, vera bera að ofan og knúsa hund (í staðinn fyrir barn) til að búa til sem nákvæmastar eftirlíkingar af prófílmyndum þeirra sem hann valdi að hrekkja.
Því miður var enginn sem skildi grínið og samþykkti hann sem vin. Fólki fannst þetta bara “krípí” og breytti strax um prófílmynd.
____________________________________________________________________
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.