Það er tilvalið að grilla fisk og sjávarfang ýmis konar en þá þarf fiskurinn að vera nokkuð þéttur í sér eigi að setja hann og elda beint af grillinu. Annars er betra að nota sérstaka álbakka eða grindur. Með því að þræða fiskinn upp á rósmaríngreinar kemur einstakur keimur af kryddjurtinni í fiskinn.
- 250 g humar
- 250 g hörpuskel, má líka nota annan þéttan fisk
- 1 sítróna, safinn
- 3-4 hvítlauksrif, marin
- 2 msk ólífuolía
- 1 handfylli fersk steinselja, söxuð (má sleppa)
- rósmaríngreinar
- salt og grófmalaður pipar
Blandið saman sítrónusafa, ólífuolíu, hvítlauk og steinselju og saltið og piprið aðeins. Þræðið fiskinn upp á rósmaríngreinarnar og penslið með blöndunni. Grillið í 1-2 mín á hvorri hlið.
Borið fram með fersku salati, sósu og grilluðum sítrónubátum.
Hér er tillaga að mjög einfaldri og ljúfri hvítlauksósu sem hæfir með ýmsum grillmat.
Hvítlaukssósa:
- 2 dl grísk jógúrt
- 1-2 hvítlauksrif, marið
- 1 msk sítrónubörkur, rifinn
- skreytt með graslauk