Í New York býr Novogratz fjölskyldan sem telur níu manns.
Parið kaupir niðurnídd húsnæði sem hafa áður hýst verslanir eða einfaldlega ekki neitt, s.s. yfirgefin hús. Húsnæðin gera þau síðan sjálf upp í falleg fjölskylduheimili. Nú hafa þau lokið við að endurbæta ellefu rými og þar af búið í fimm þeirra.
Robert & Courtney Novogratz eru hönnuðir sem reka fyrirtækið SIXX design. Nýlega gáfu þau út bókina DOWNTOWNCHICK sem sýnir breytingar á húsnæðum þeirra. Smelltu á smámyndir til að stækka þær upp og því næst á örina til hægri.
Nýjasta heimili þeirra Novogratz hjóna var áður klúbbur og mótorhjólaverslun. Það ber sannarlega keim af áhugamáli þeirra hjóna sem hófst þegar þau kynntust fyrir fimmtán árum en hjónin elska að skanna markaði og antíkverslanir í leit að gersemum.
Húsið þeirra er einstaklega bjart og fallegt og arkitektinn var óhræddur við að nota ferska liti eins og gulan, rauðan og bláan.
New York Times hefur fjallað um hjónin og eru enn fleiri ótrúlega töff myndir af heimili þeirra hér.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.