Playboy mógúllinn Hugh Hefner segir í viðtali við tímaritið Esquire að hann sé búinn að sofa hjá mjög mörgum konum en hversu mörgum veit hann ekki.
Hugh telur þó að konurnar séu yfir þúsund jafnvel fleiri. Hann hafi þó verið þrisvar sinnum giftur og að hans eigin sögn þá hefur hann alltaf verið trúr eiginkonum sínum og aldrei haldið framhjá en bætti síðan svo sannarlega fyrir það þegar hann var einhleypur.
Hugh er þekktur fyrir að eiga fleiri en eina kærustu í einu og hver man ekki eftir þríeykinu Holly, Kendru og Bridget en þær fengu sinn eigin raunveruleikaþátt þar sem að sýnt var frá þeirra daglega lífi á Playboy setrinu.
Núna er Hugh giftur í þriðja sinn og sú heppna heitir Crystal Harris en þau giftu sig við látlausa athöfn í desember síðastliðinn eftir stormasamt samband á undan. Crystal hafði nefnilega slitið trúlofuninni sama ár en kom síðan skríðandi til baka til Hugh og bað hann afsökunar og vildi fá hann aftur.
Hugh segir að honum finnist hann vera afar heppinn á þessum aldri og á þessu stigi ævinnar. Hann sé yfir sig ástfanginn og segir að Crystal sé sálufélaginn hans en þess má einnig geta að Crystal er 26 ára og Hugh 86 og reiknið nú!
Hugh segir einnig að fólk sjái bara ljóshærða unga stelpu sem er að sækjast eftir frægð og peningum en Hugh segir að hún sé sú eina rétta og hann hafi fengið að giftast þeirri bestu í lokin.
Eins og þeir segja, ástin spyr ekki um aldur, eða hvað? Er þetta bara í fínu lagi eða pínu skrítið þar sem Hugh gæti verið langafi Crystal?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig