Lancóme hefur sett á markaðinn nýja líkamslínu sem nefnist LA RÓSE, þessi lína byggist á þremur rósasamsetningum sem endurnýja húðina daglega.
Rósirnar þrjár nefnast Centifolia, Gallica og Canina, kremið inniheldur einnig olíur og sjávarsmjör sem er frábært á þurra húð (Shea butter).
Konur glíma oftar en ekki við það vandamál að húð þeirra er bæði þurr og viðkvæm-sérstaklega á Íslandi þar sem veðrið getur verið stór þáttur í hvernig húð okkar er upplögð hverju sinni.
Þetta krem veitir raka OG verndar varnarkerfi húðarinnar, það nærir hana og róar.
Lyktin af kreminu er ekki yfirþyrmandi eins og mörg önnur og er hægt að vera með uppáhaldsilmvatnið sitt um leið og kremið án þess að það yfirgnæfi lykt ilmvatnsins.
Kremið inniheldur mjúkan rósablómailm sem er frísklegur, sætur og veitir vellíðan
Frábært krem sem er milt, gott og veitir góðan raka yfir daginn. Kemur í 150 ml fallegri túbu með bleikri rós framan á.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig