Eucerin er þekkt fyrir að vera með vörur fyrir viðkvæma húð og þessi vara er engin undantekning.
AQUAPORIN ACTIVE REFRESHING GEL LOTION-LIGHT líkamskrem er létt í sér og maður verður alls ekki feitur á húðinni við notkun en finnur samt hvernig það smeygir sér létt inn í húðina.
Kremið veitir langtíma rakadrægni og kemst inn í dýpstu lög hennar. Það hentar vel fyrir viðkvæma húð og er frábært að bera það á sig þegar maður er nýkomin úr baði eða sturtu. Það er nefninlega enga stund að þorna en veitir samt sem áður góðan raka og er því frábær valkostur fyrir þær sem eru á hraðferð.
Þetta er mjög gott rakakrem/body lotion á frábæru verði en Eucerin vörurnar eru bara seldar í Apótekum.
Og…þess má geta að Beyoncé elskar Eucerin Aqua porin kremið úr þessari línu, lestu nánar um það hér.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig