Núna næstu helgi, 13 – 15 september verður haldin húðflúrráðstefna í Súlnasalnum á Hótel Sögu og er þetta annað árið í röð sem þessi ráðstefna er haldin.
Þetta árið verður hún stærri en í fyrra, fleiri húðflúrar og meira um að vera.
Á ráðstefnunni verða um 55 húðflúrarar sem koma víðsvegar að úr heiminum, allir þeir ólíku stílar og hefðir sem þekkjast í heiminum í dag verða undir sama þaki. Ættbálkahúðflúrari frá Borneo, Víkingaflúrarar, handstungin flúr á ólíka vegu og líka allt það nýjasta í heimi flúrara.
Einnig mun Japanski listdansarinn Sana segja japanskar þjóðsögur í gegnum hefðbundinn japanskan dans, fakírinn Toby gengur fram af viðstöddum, hljómsveitin Contalgen Funeral mun koma fram og svo eru Tattoo keppni á hverjum klukkutíma.
Það verður af nógu að taka alla helgina og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Nálgunin á viðburði sem þessum er húðflúrið sem listform og notaleg samvera húðflúráhugamanna og forvitinna.
Hægt verður að kaupa dagpassa og helgar passa og auðvitað er frítt inn fyrir öll börn.
Heimasíðan er www.icelandictattooexpo.com og einnig er hægt að finna viðburðinn Facebook.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.