Twerk er plank dagsins í dag í Bandaríkjunum og það þykir fátt flottara en að hlaða myndbandi af sér að “twerka” á netið.
Að twerka er samt nokkuð erfiðara en að planka og það er alls ekki á færi þó að alltof margir reyni. Það er erfitt að ætla að skilgreina twerk en hér er myndband af Miley Cyrus að twerka í einhyrnings-samfestingi (en ekki hvað):
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=_8YCl7_CpPY[/youtube]
Það að twerka tekur svolítið á. Ef hnébeygjur taka á hjá þér í ræktinni bíddu þá þar til þú ferð að twerka! En ef þig hefur einhvertíma dreymt um stóran rass í anda Coco og danshreyfingar sem passa honum þá gæti verið að twerk sé svarið. Manni finnst þetta nú samt vera komið einum of langt þegar svona ungar stelpur eru farnar að twerka eins og þær eigi lífið að leysa:
[youtube]http://youtu.be/82WwqXyyWXg[/youtube]
Undanfarið hafa líkamstræktarstöðvar ytra keppst við að halda twerk-námskeið og líkamsræktartíma sem byggjast á twerki og einnig hafa verið gefin út líkamsræktarmyndbönd sem hafa runnið út hraðar en Tae-Bo myndbönd Billy Banks í gamla daga. Á YouTube er líka að finna fjöldann allann af myndböndum þar sem manni er kennt að rækta líkamann með twerki. Þar er líka að finna þetta ágæta myndband þar sem kennt er að twerka í mestu smáatriðum:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=NgoyVRO0A0E[/youtube]
Við Pjattrófur mælum nú ekki neitt sérstaklega með þessum dansstíl nema kannski til skemmtunnar heima fyrir, en fyrir þær sem vilja tapa sér í twerkinu og eru með “booty” í það er alltaf hægt að stefna að því að ná þessum hæðum í twerkinu — og gerast jafnvel íslandsmeistari?
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=dISA_3eFdzA[/youtube]
Tinna hefur brennandi áhuga á næstum öllu en þó líklega mest á sjónvarpi og kvikmyndum, án þess þó að hafa nokkurt faglegt vit á hvorugu.
Hún er nemandi í mannfræði og starfar með náminu sem samfélagsmiðlaráðgjafi. Hún elskar allt sem kemur eldamennsku og bakstri við, og þá mest af öllu að baka íslenskar pönnukökur og að poppa örbylgjupopp. Markmið Tinnu í lífinu er að vera góð, láta gott af sér leiða og skemmta sér frábærlega á meðan.