Það skiptir sköpum að hafa réttan þrýsting á reiðhjólinu þínu og þar sem sumarið er framundan og átakið Hjólað í vinnuna hefst 9. maí næstkomandi þá er rétti tíminn að gera sér ferð út á næstu bensínstöð og pumpa í dekkin.
Á flest öllum bensínstöðum má finna sjálfvirkar loftdælur sem auðvelt er að nota en áður en þú byrjar að pumpa þarftu að kíkja á dekkið á hjólinu til að athuga hvaða þrýsting dælan á að vera stillt á.
Það sem þú leitar eftir á hliðinni á dekkinu er tala á ákveðnu bili og stendur mælieiningin PSI (Pounds per square inch) fyrir aftan töluna en það sem kemur mörgum á óvart er að bíldekk þurfa minni þrýsting en reiðhjóladekk. Til dæmis nota ég 60-80PSI á hjólinu mínu en á bílnum okkar er 28PSI.
Það sem gerist með því að nota réttan þrýsting á dekkjunum er að mun auðveldara er að hjóla, þú ferð hraðar og slit á dekkjunum er minna.
Mikilvægt er að pumpa regluglega í dekkin og sérstaklega ef þau hafa verið óhreyfð í lengri tíma en þegar ég hjóla á hverjum degi í vinnuna og fer í lengri ferðir um helgar kem ég við á bensínstöð einu sinni í viku.
Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir (f.15 feb 1975 – d. 8 apríl 2014) bloggaði á Pjatt.is í rúmlega tvö ár.
Sigrún Þöll starfaði sem tölvunarfræðingur, var dellukona, tækjasjúk og fagurkeri af lífi og sál. Að eigin sögn fannst Sigrúnu gaman að hlaupa, hjóla, drekka kaffi, huga að heilsunni, prjóna, lesa, taka ljósmyndir, rækta garðinn sinn og fleira og fleira. Blessuð sé hennar minning. Sigrún verður ógleymanleg þeim sem kynntust þessari dásamlegu konu.