Ef þú ert hrifin af sérstökum og fallegum húsgögnum sem skera sig úr þá áttu eftir að elska hönnunina frá Polart
Hjá Polart vinna margir eðal hönnuðir við að breyta klassískri hönnun í nútímalega hönnun og útkoman er hreint út sagt glæsileg! Gjörsamlega gordjösss!
Nýjasta línan frá þeim heitir Bold inside Out og skera þeir húsgögnin út þannig að þú sérð umgjörð húsgagnanna í stað þess að sjá þau eins og við erum vön að sjá húsgögn. Eins nota þeir sterka liti til að gera húsgögnin aðeins meira áberandi.
Þeir hafa fengið mikla athygli víða og eru mjög eftirsóttir enda stórglæsileg húsgögn á ferð…
Gordjöööösss alla leið!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.