Það er fátt sem gleður mitt hjarta meira en fallegir hlutir. Ég reyni eins og ég get að umkringja mig þeim svo að mér líði vel heima hjá mér og öðrum líði vel sem koma þangað.
Inn á milli fallegu hlutanna minna finnst mér samt alveg ótrúlega gaman að koma fyrir einhverjum hlutum sem kannski ekki öllum finnst fallegir en eru öðruvísi, skrýtnir og skemmtilegir og lífga aðeins upp á umhverfið.
Tinna hefur brennandi áhuga á næstum öllu en þó líklega mest á sjónvarpi og kvikmyndum, án þess þó að hafa nokkurt faglegt vit á hvorugu.
Hún er nemandi í mannfræði og starfar með náminu sem samfélagsmiðlaráðgjafi. Hún elskar allt sem kemur eldamennsku og bakstri við, og þá mest af öllu að baka íslenskar pönnukökur og að poppa örbylgjupopp. Markmið Tinnu í lífinu er að vera góð, láta gott af sér leiða og skemmta sér frábærlega á meðan.