Pasha er nýjasta hönnun Pedrali frá Ítalíu en Pedrali eru þekktir fyrir hágæða húsgögn bæði innihúsgögn sem útihúsgögn.
Þessi nýjung þeirra er klárlega stíll fyrir alvöru pjattrófur. Stóllinn minnir á Öskubusku nema er úr plasti en ekki gleri. Þrátt fyrir það held ég að hún hefði nú ekki slegið hendinni á móti því að sitja í svona stól.
Stóllinn kemur í glæru og svörtu og hentar bæði sem inni stóll og útistóll. Ég myndi þó ekki geyma stólinn úti hérna á Íslandi en í heitari löndum stendur hann hiklaust úti á verönd við hliðina á sundlaugarbakkanum. Auðvelt er líka að skella púða í hann og þá er útlitið gjörbreytt. Fer bara eftir stemningu hvaða lit fólk velur sem púða.
Fullkominn stóll fyrir fólk sem velur húsgögn með stemningu og fegurð í huga.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.