Þvílík snilld!
Brasilíska fyrirtækið Trapos e Monstros býður upp á þá þjónustu að gera leikfang úr teikningu barnsins þíns. Þú einfaldlega sendir þeim mynd sem barnið þitt hefur teiknað og þeir handsauma eintakið fyrir þig. Þvílík snilld… þetta er bara æðisleg hugmynd!
Þetta er gert til að leyfa sköpunargleði barnanna að njóta sín, leyfa þeim að sjá hvernig hugmynd getur orðið að veruleika.
Sjúklega sniðugt..kíktu hérna ef þú vilt meiri upplýsingar.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.