Leeora Catalan er konan á bak við Noir Jewelry. Einstaklega frjór og skemmtilegur hönnuður.
Ferill hennar byrjaði meðal annars inni á borði hjá Oscar De La Renta og Ralph Lauren en árið 1995 opnaði hún svo sitt eigið stúdío eftir að hafa fengið skartgripahönnun sína birta í Ítalska Vogue. Þaðan var ekki aftur snúið.
Lady Gaga, Katy Perry, Rihanna, Madonna, Fergie, Beyonce og Gwen Stefani eru meðal þeirra glæsikvenda sem hafa borið skart hennar og þu getur kíkt í albúmið til að skoða þessa flottu og svölu gripi.
Hér er hægt að nálgast skart hennar og jafnvel fjárfesta í einum hring eða tveim.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.