Loksins komu á markað myndavélatöskur sem eru bæði fallegar og rúmgóðar.
Kelly Moore er ljósmyndari sem byrjaði að hanna töskur fyrir nokkrum árum. Töskurnar hafa vægast sagt slegið í gegn erlendis og nú loksins eru þær fáanlega hér á landi. Töskurnar fást í öllum stærðum og gerðum. Ég gjörsamlega kolféll fyrir einni um daginn og get ekki verið ánægðari. Í töskuna kemst allt fyrir og gott pláss fyrir tölvuna eða Ipadinn líka. Þvílík snilld því þær eru alveg augnayndi.
Þetta er tilvalin jólagjöf fyrir ljósmyndarann í þinni fjölskyldu!
Hægt er að kaupa Kelly Moore tösku hjá vefversluninni Pollyanna.is sjá hér
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.