Ég rakst á svo flotta heimasíðu um daginn sem sýndi hönnun ungrar konu að nafni Kelly Behun…
Kelly er búsett í New York og starfar sem innanhúshönnuður. Á heimasíðu hennar má sjá nokkur lúxus heimili sem hún hefur tekið í gegn og eru þau öll ótrúlega glæsileg.
Hvíti liturinn er áberandi í glæsilegri hönnun Kelly sem og stór og vegleg listaverk.
Smelltu á myndirnar fyrir neðan til að sjá hönnun Kelly nánar, ekki amalegt að búa svona!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.