Fuck Your Nogushi Coffee Table er yndislega skemmtileg og kaldhæðin síða með bæði flottum og sniðugum hugmyndum fyrir heimilið.
Mér þykir sérlega skemmtilegt að forsprakkar síðunnar taka hvorki sjálfa sig né hönnun alvarlega heldur byrja hverja lýsingu á “Fuck your..” til að gefa í skyn að þeim þyki hitt og þetta ekki flott. Maður getur svo dæmt sjálfur hvort það er kaldhæðni eða ekki.
Þessi sýn er skemmtileg andstæða við alla “I want” yfirlýsingar sem maður á að venjast á síðum sem þessum og það að snobba ekki fyrir merkjum er kærkomin tilbreyting…
Kíkið á síðuna hér!
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.