Sú var tíðin þegar hús voru gerð upp að allt var rifið út og nýtt sett inn í staðinn -en nú er fólk farið að endurnýta hluti úr gömlum húsum “þökk” sé kreppunni 😉
Hér má sjá nokkrar skemmtilegar hugmyndir um hvernig má nýta það gamla.
Til dæmis geta gamlar hurðar fengið nýjan tilgang sem höfuðgafl, borðstofuborð eða jafnvel sem veggskreytingu í nýja húsinu.
Kíktu á albúmið en hér má sjá gamlar hurðar notaðar í ýmsum skemmtilegum tilgangi.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.