Þetta er mögulega smartasta apparat sem ég hef séð á þessu ári. iPhone hátalari sem virkar á jafn einfaldan hátt og lúður.
Þú bara setur símann í endann á lúðrinum og hljóðið magnast upp. Væri ekki dásamlegt að hafa svona fínerí í eldhúsinu sínu til að hlutsta á morgunfréttirnar? Svo er þetta líka afbragðsgjöf fyrir týpuna sem er bæði fagurkeri og græjugella – eða gaur.
Lúðurinn er hægt að fá hvítan, svartan og gylltan og hann kemur á fallegum tréstandi. Það eru ítölsku hönnuðurnir en&is sem búa þetta til og þú getur keypt vöruna hér.
[vimeo]http://vimeo.com/26860562[/vimeo]
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.