Þetta skemmtilega kökuskraut sá ég hjá Visual Hearts
..Alveg einstaklega flott og ekkert smá sniðugt en það er mjög einfalt að búa til svona sjálf, sérlega sneddí fyrir afmælið -hvort sem er hjá barni eða fullorðnum.
Það sem þarf að gera er að taka nokkur leikfangadýr úr plasti og gera gat á þau með því að skrúfa í “magann” á þeim- svo er grillspjóti stungið í gatið og dýrin spreyjuð í einhverjum skemmtilegum lit.
Ótrúlega lekkert!
Viktoría Hinriksdóttir er yngsta pjattrófan. Fædd í ljónsmerkinu árið 1994. Hefur áhuga á öllu sem tengist hreyfingu og íþróttum, mataræði, tísku og öðru sem gerir lífið fallegra, betra og skemmtilegra.