Antonio Mora er spænskur innanhússhönnuður, ljósmyndari og listrænn leikstjóri
Hann tekur mikið af ótrúlega flottum myndum og smellir þeim á viðarplanka. Sumar myndirnar eru framkallaðar á pappír og aðrar á vínyl svo er þeim komið fyrir á grófum viðarplönkum og útkoman er hreint út sagt svakaleg.
Verkin eru öll frekar stór eða sirka 220×90 og jafnvel mun stærri Sjón er sögu ríkari, ef þig langar til að skoða verkin hans betur þá mæli ég með því að fylgjast með honum hér á Pinterest.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.