Verslunin Urban Outfitters er í uppáhaldi hjá mörgum enda með þeim mest hipp og kúl sem til eru.
Í Urban Outfitters er hægt að fá bæði fatnað fyrir karla og konur en líka skemmtilega hönnun, gjafavöru og gripi til heimilisins.
Society6 er svo alþjóðlegt samstarf listamanna sem sameinar fleiri en 70 lönd um gervallan heim. Innkaupastjórar Urban Outfitters kíkja reglulega á það sem kemur frá Society6 og velja úr það sem þeim finnst flottast og svo getur þú pantað þér eitthvað flott og fengið sent heim.
Ég tók hérna saman nokkrar æðislegar myndir sem hægt er að hengja upp á vegg í ramma, nota sem ‘cover’ á tölvuna eða um iPhone eða iPad…
Ótrúlega smart og snilldar jólagjöf. Drífðu þig bara að panta!
(Ef þú ert á leið erlendis í innkaupaferð er hægt a panta, láta senda á hótelið og sækja svo þar.)
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.