Söngkonan Jennifer Lopez er á fullu núna í heimstúrnum sínum Dance Again en hélt lokatónleika fyrir Suður Ameríku í borginni Recife Brasilíu.
Jennifer lét ekki nokkra rigningardropa á sig fá og dansaði eins og enginn væri morgundagurinn með svakalega flottu magavöðvana sína og í glimmer/semalíu/silfur/gyllta dressinu sínu.
Að mínu mati verður hún alltaf flottari og flottari eftir því sem hún eldist. Kannski að hún ljómi líka öll og geisli af gleði vegna þess að kæró hennar hann Casper er töluvert yngri en hún hmmmmm?
Skoðaðu myndasafnið hér að neðan af söngkonunni “singing in the rain” í bókstaflegri merkingu!
______________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig