Bandaríska kántrísöngkonan Leann Rimes eyddi 29 afmælisdeginum sínum á ströndinni ásamt eiginmanni og vinum.
Hún eyðir reyndar flestum dögum á ströndinni og segir heiminum frá því hvað hún er að gera þar með því að pósta statusum á Twitter .
“Besti strandardagurinn!” tilkynnti hún áköf á Twitter meðan hún stillti sér upp fyrir papparazzana á Malibu ströndinni þar sem hún lék sér með eiginmaninum Eddie Cibrian og einhverjum vinum “Svooooo stútfull af pizzu”…
EINMITT LeAnn. Ertu stútfull af pizzu? Ertu með pizzu í maganum? 12 tommu kannski? Jaaaá, maður sér það strax. Þessi fitusnauði vöðvaði búkur er auðvitað STÚTFULLUR af deigi, osti og allskonar kolvetnagúmmelaði. Ha? Nei!
Allavega. LeAnn tilkynnti líka að eiginmaðurinn hefði gefið henni tösku sem er special, special, special edition af einhverju special Celine dæmi en aðeins 13 töskur voru gerðar og eiginmaðurinn fór víst næstum því á hausinn við kaupin: “OMG….orðlaus! Maðurinn minn er dásamlegur!”
Gott fyrir þig LeAnn… gott fyrir þig… og verði þér að góðu. Meiri pizza… mmmm*
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.