Victoria Beckham er á forsíðu breska Harpers Bazaar núna í Maí en tímaritið er helgað öllu því sem er flott við Bretland…
Í viðtalinu talar Victoria meðal annars um hvernig það er að reyna að vera súpermamma og farsæll fatahönnuður en henni finnst frekar erfitt að blanda þessu tvennu saman. Hún talar um líkamsbreytingar og segir að maginn sinn sé ekki nærri eins stinnur eins og hann var áður en hún eigi samt sem áður fjögur yndisleg börn og það er það sem skipti virkilega máli, ekki hvernig líkaminn eða maginn líti út.
Victoria talar einnig um hvernig það er að vera frú Beckham og að sofna við hliðina á David á hverju kvöldi en hún segir meðal annars að þau séu bæði að eldast og finni bæði fyrir því, en séu alls ekki að reyna að berjast gegn því. Hmmm…?
Smelltu hér til að skoða nokkrar myndir úr viðtalinu og fleira…
Harpers Bazaar: www.harpersbazaar.co.uk
Myndir: Harpers Bazaar og Gossipcenter.com
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig