Það er nóg að gera hjá Victoriu Beckham um þessar mundir, hún er fjögurra barna móðir, fatahönnuður og með söngleik í bígerð!
Victoria var einmitt á dögunum stödd á Írlandi að kynna nýjustu fatalínuna sína en tískublaðamönnum var sérstaklega boðið á viðburðinn.
Frú Beckham hélt kynninguna sína í versluninni Brown Thomas sem er staðsett í Dublin og var hún afar smart í svartri hnésíðri kápu. Hún mætti þó fara að breyta um stellingar en hún var með sama svipinn og með hendur í vösum á nánast öllum myndunum.
Sú sem stal senunni var þó ekki Victoria sjálf heldur dóttir hennar Harper Seven sem kom trítlandi inn með mömmu sinni klædd í bláan kjól og svarta skó. Daman verður án efa mikil tískudrottning enda er mamma hennar afar smart í klæðaburði.
Hér eru nokkrar myndir frá blaðamannafundinum:
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig