Nú stendur yfir tískuvika í New York og margar af frægustu stjörnum heims láta sig ekki vanta á þennan árlega atburð.
Victoria Beckham tók þátt í kvöldi sem kallast “Fashion Night Out” en þar kynna hönnuðir það sem koma skal í búðum sínum og senda út boðsmiða til þeirra sem þeir vilja gjarnan að komi til sín og skoði (og fá eitthvað gefins).
Victoria Beckham mætti í verslun Bergdorf Goodman og þar var engin önnur en Anna Wintour ritstjóri Vogue en hún lætur sig að sjálfsögðu ekki vanta á tískuvikuna sjálfa enda afar eftirsóttur gestur á tískusýningar hjá hönnuðunum.
Hér að neðan má sjá myndir af þeim stöllum í partýinu sem Bergdorf Goodman hélt.
_____________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig