Victoria Beckham er forsíðustúlka Glamour Magazine nú í september en hún lét það ekki duga heldur fékk hún einnig að vera gestaritstjóri.
Victoriu fannst afar spennandi að sjá hugmyndir sínar lifna við í blaðinu, allt frá því að velja litapallettur til mynda sem enduðu í blaðinu. Hún gerði líka lista yfir það sem hún vildi ekki sjá í blaðinu og þar á meðal voru hinir alræmdu Crocs skór!
Þegar hún er spurð að því af hverju hún brosi aldrei þá segir hún “Ég veit það ekki, veist þú það”? og brosir síðan.
TÍSKAN TÓK BROSIÐ
Hún segir að hún hafi oft brosað hér áður fyrr en eftir að hún fór í tískubransann þá hafi hún hætt því- Tískan stal brosinu hennar! Hún vill samt meina að þetta sé ekki hún heldur einhver karakter eða skjöldur sem hún hafi búið til fyrir tískuna.
Victoria er að lesa bókina “50 Shades Of Grey” sem er að slá öll met í lestartölum. Hún er búin með fyrstu bókina og er hálfnuð með bók númer tvö. Tískudívan viðurkennir að hafa keypt eintak af bókinni handa mömmu sinni en reynir samt sem áður að forðast að tala um hana við hana því hún vilji alls ekki fara að tala um S&M kynlíf við móður sína!
Eiginmaður Victoriu kom í fyrsta sinn á tískusýningu hjá henni síðast þegar hún kynnti nýju línuna sína. David hefur aldrei komist áður á sýningu hjá frúnni og Victoria viðurkennir það að hún hafi verið frekar stressuð að fá hann.
Það sem róaði hana þó niður var að David hringdi kvöldið fyrir sýninguna og sagðist vilja fá hana til sín að kúra. Victoria segir að það hafi verið gott að fá stuðning frá David meðan á sýningunni stóð en bóndinn var afar hissa á að sjá hversu mikið gekk á baksviðs. Hún hafði aldrei útskýrt í smáatriðum hvernig tískusýning gengur fyrir sig og hann varð gersamlega agndofa yfir öllu fólkinu og fjaðrafokinu!
Victoria vonar að eftir fimm ár verði fjölskylda þeirra heilbrigð og hamingjusöm. Hún vonast til þess að fyrirtæki hennar vaxi áfram og dafni hún vill halda áfram að láta konum líða vel í fallegum fötum.
Hvað fleiri barneignir varðar segir hún aldrei að segja aldrei, þetta sé þó gríðarlegt púsluspil sem fylgi því að eiga fjögur börn, ásamt því að eiga eiginmann sem sé afar upptekinn!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig