Victoria Beckham er á tískuvikunni í NYC með níu vikna gamla dóttur sína…
…og hún tekur hana með sér út um allt, svona eins og Paris Hilton með smáhundinn Tinkerbell.
Hin nýbakaða mjóa móðir sást til dæmis bera ungabarnið með sér inn í Prada verslun þar sem þær voru báðar í samskonar bleikum kjólum og þar á eftir skrapp hún í Marc Jacobs verslun í Soho.
Victoria er heldur ekkert að grínast með lúkkið. Hún treystir sér vel til að bera litla demantinn í fanginu meðan hún sjálf stultast um á 17 sentimetra hælum frá Christian Louboutin. Ég sagði 17 sentimetra hælum!
Fyrir utan Harper litlu Seven eiga þau Beckham hjónin þrjá drengi: Brooklyn sem er 12ra, Romeo sem er 9 ára og Cruz sem er sex ára.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.