Desemberútgáfa spænska Vogue virðist tileinkuð nekt og fallegum líkömum en ég skrifaði einmitt um það í gær að Kate Moss væri berbrjósta í tímaritinu.
Í þetta sinn taka nokkar fyrirsætur Victoria’s Secret þátt í myndaþætti sem er tekinn af hinum víðfræga Mario Testino en hann hefur tekið myndir af öllum helstu og þekktustu fyrirsætum heims, fyrir flest stóru tímaritin.
Ekki sýndu þó allar fyrirsæturnar brjóstin eða beran bossa en klæðnaður þeirra er ekki efnismikill, það er ekki hægt að segja það. Myndirnar eru þó afar flottar og þær eru sjúklega flottir kroppar margar. Fyndið samt að það er búið að blörra vissa líkamsparta, eflaust til að vernda blygðunartilfinningar einhverra.
Myndirnar eru samt alls ekki ósmekklegar enda í Vogue en það væri nú skemmtilegt að fá að fletta í gegnum blaðið til að skoða alla tískuþættina nánar.
Hér að neðan getur þú síðan séð hörfkuflotta kroppa og sætar skvísur kenndar við engla Victoriu.
____________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig