Fyrrverandi unnusta/kærasta og barnsmóðir Johhny Depp (49), Vanessa Paradis (40) er brjáluð út í ungu leikkonuna Amber Heard (26) sem er að deita kyntáknið núna.
Samkvæmt heimildum hefur Vanessa meðal annars kallað hana konu sem stelur mönnum sem er enginn! Eða ” man-stealing, two-bit nobody ” .
Vanessa er einnig staðráðin í því að Amber fái ekki að koma nálægt börnum þeirra en hún er afar særð og sár eftir skilnaðinn við leikarann fræga.
Amber og Johhny eru að deita og hafa ekki neitað þeim sögusögnum. Johnny er á fullu að taka upp nýjustu kvikmynd sína “The Lone Ranger” og er Amber tíður gestur á settinu þar sem að þau eru innileg á milli atriða.
Þau tvö léku saman í “The Rum Diary” og kynntust þar en talið er að samband þeirra hafi byrjað eftir að þau tóku þá mynd upp og trítar Johnny hana afar vel segja kunnugir.
Já það er greinilega ekki alltaf tekið út með sældinni að vera frægur Hollywood leikari þar sem freistingarnar eru á hverju strái…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig