Mikill harmleikur hefur verið í lífi söngvarans Ushers undanfarið, hann missti fósturson sinn í “Jet-Ski” slysi fyrir stuttu og hefur háð hatramma forræðisdeilu við fyrrverandi konu sína.
Usher og Tameka skildu árið 2009 og hefur forræðisdeilan því verið löng og ströng.
Þau komu bæði fram sem vitni í réttarhöldunum og sagði Tameka að Usher hefði verið fjarri drengjunum sínum í lengri tíma og var því ekki viss um það að hann væri hæfur sem faðir en Usher hefur verið upptekinn í tónleikaferðalögum og kynningum.
Tameka sagði reyndar einnig að hún hefði aldrei náð að tengjast drengjunum sínum og það væri búið að brennimerkja hana sem óhæfa móður. Tameka er enn að syrgja son sinn Kile en það eru aðeins nokkrar vikur síðan hann lést. Tameka Twittaði meðal annars að peningar gætu ekki keypt ástina en gætu svo sannarlega keypt margt annað, sannleikurinn kemur í ljós síðar.
Drengirnir munu dvelja hjá Usher en Tameka mun fá einhvern umgengnisrétt yfir þeim tveimur, dómarinn á eftir að ákveða hvað hún fær að verja miklum tíma með þeim.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig