Útlitsdýrkun í dag er gríðarleg og þá sérstaklega hjá stjörnum í Hollywood.
Fræga fólkið eyðir fúlgum fjár og miklum tíma í að líta sem best út. Fegrunaraðgerðir eru mjög algengar og sumir enda jafnvel afmyndaðir í andlitinu eftir að hafa farið yfir strikið í þeim efnum.
En sumar stjörnur eru bæði heppnar með gen (og lækna) og líta út fyrir að vera mun yngri en þau eru í raun og veru.
Hérna er listi yfir nokkra sem mér finnst bera aldurinn nokkuð vel:
Demi Moore: Pían er orðin 48 ára gömul! Geri aðrir betur. Enda á hún muuun yngri mann. Ashton Kutcher kærastinn hennar er 33 ára gamall.
Iman: 55 ára! Ég er orðlaus, hvernig fer konan að þessu? Hún gæti auðveldlega verið 35 ára!
Elle Mcpherson: Þessi ástralska kynbomba hefur ekkert breyst í áratugi. Hún er 48 ára og enn þann dag í dag ein svo flottasta í Hollywood! Vel gert Elle!
Colin Firth: Breski sjarmörinn sem við þekkjum flestar úr Bridget Jones Diary’s er fimmtugur. Ennþá nokkuð myndalegur og lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en fertugur!
Nigella Lawson: Sjónvarpskokkurinn með fallegu línurnar er fimmtug. Stórglæsileg kona sem ég held mikið uppá.
Gwen Stefani: Ofurtöffarinn Gwen er 41 árs. Fyrir mér er hún 25 ára!
Johnny Depp: Ó elsku Johnny 47 ára, virkilega??? Og enn mesti folinn í Hollywood.
Helen Mirren: Drottningin sjálf er stórglæsileg 65 ára gömul.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.