Rihanna settist niður í sumar með Opruh og ræddi um lífið og tilveruna en þar kom meðal annars fram að hún ber enn tilfinningar til Chris Brown.
Rihanna kærði Chris fyrir líkamsárás árið 2009 en sagði í viðtalinu við Opruh að hún beri tilfinningar til hans og þau væru enn góðir vinir, hann væri að vinna úr sínum vandamálum.
Joan sagði þetta á Twitter síðu sinni eftir að hafa séð viðtalið:
“Rihanna viðurkenndi fyrir Opruh að hún elski ennþá Chris Brown. Ég held að það sé kominn tími til þess að ÉG slái hana núna!”
Rihanna svaraði Joan á þennan veg:
“Vá, Joan það hægist í alvöru á fólki þegar það eldist, skelltu á þig bleiu.”
Joan var ekki lengi að svara Rihönnu og sagði:
Rihanna elskan, allir vita að ef hann slær þig einu sinni þá slær hann þig aftur -skoðaðu tölfræðina. P.s. ég myndi gjarnan vilja fá þig í Fashion Police.”
Hvað finnst þér?
[poll id=”55″]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig