Þá er lokamynd Twilight seríunnar loksins komin í bíó og leikararnir eru á rauða dreglinum dag eftir dag á frumsýningum.
Kristen sagði í viðtali eftir frumsýninguna í Los Angeles að hún eigi eftir að sakna þess að mæta á frumsýningar seríunnar vegna þess að hún fái alltaf fiðrildi í magann og skemmti sér konunglega við kynningar fyrir myndirnar, leikhópurinn sé einnig frábær og hún eigi eftir að sakna þeirra.
Kristen mætti til London í samfesting sem skildi lítið eftir fyrir ímyndunaraflið en það verður að segjast að daman bar hann afar vel og hún lítur mjög vel út núna.
Robert og restin af genginu var einnig á svæðinu en hér að neðan eru myndir af þeim á frumsýningunni í London.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig