Þá er skilnaður leikkonunnar Katie Holmes og leikarans Tom Cruise formlega genginn í gegn.
Samkvæmt heimildum vestanhafs gekk skilnaðurinn í gegn þann 20. ágúst og gekk þetta allt saman fyrir sig á ljóshraða þar sem Katie sótti um slilnaðinn í Júní!
Samkvæmt heimildum gekk skilnaðurinn svona hratt fyrir sig vegna A-lista stöðu þeirra (eða Tom). Katie er ennþá með fullt forræði yfir Suri en það á eftir að ganga frá ýmsum lausum endum í sambandi við litlu dömuna. Tom hefur þegar fjárfest í íbúð á Manhattan og Katie leigir glæsilega íbúð í New York borg (sem hún var búin að tryggja sér rétt áður en hún sótti um skilnaðinn).
Þá er bara stóra spurningin hvernig Katie mun ganga í leiklistinni eftir allt fjaðrafokið og papparassafárið í kringum skilnað þeirra?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig