Tom Cruise er niðurbrotinn maður eftir skilnaðinn við Katie Holmes og íhugar að hætta í Vísindakirkjunni til að fá hana aftur.
Tom hefur verið í tuttugu ár í Vísindakirkjunni og vera hans þar hefur ekki haft slæm áhrif á leiklistarferilinn en hinsvegar hefur kirkjan eyðilagt fyrir honum tvö hjónabönd.
Að sögn slúðurpressunnar vestra sér hann núna hvernig hann missti tvær dýrmætustu manneskjur lífs síns frá sér vegna tengsla við Vísindakirkjuna en þar áður fór hjónabandið við Nicole Kidman sem hann á tvö börn með en þau voru gift frá 1990-2001. Tom varð fimmtugur á þessu ári.
Heimildarmaður People Magazine sem fjallar um málið segir að Tom hafi liðið eins og hann væri ein stór mistök þegar Katie rétti honum skilnaðarpappírana en vanalega finnst honum hann ósigrandi. Í kjölfarið hefur hann fækkað þeim skiptum sem hann mætir í Vísindakirkjuna en vanalega var hann þar í bröns alla sunnudaga.
Kunnugir segja að Tom hafi til þessa alltaf notað aðferðir Vísindakirkjunnar á líf sitt en nú sé það ljóst að þær duga að minnsta kosti ekki í því sem mestu skiptir og að hugsanlega muni Katie taka við honum aftur ef hann segir skilið við kirkjuna.
Nú er bara að bíða og sjá…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.