Þá hefur Tom Cruise lokið tökum á “Oblivion” sem var meðal annars tekin upp hér á landi. Ekki var íslandsdvöl leikarans jafn ánægjuleg og hún hefði getað orðið þar sem Katie Holmes sótti um skilnað á meðan Tom var staddur við tökur myndarinnar á klakanum.
Tom var ekki lengi að fljúga til New York til að hitta dóttur sína en að sögn vina er hann með bros á vör í hvert sinn sem hann er nálægt henni. Lögmenn Tom og Katie hafa ráðlagt þeim að Suri fái að sjá það foreldri sem hún er ekki hjá hverju sinni í gegnum tölvuna og þannig geti hún spjallað við mömmu sína þegar hún er með Tom og öfugt.
Suri hélt þéttingsfast um hálsinn á pabba sínum þegar myndir náðust af þeim feðginum saman og greinilega alsæl með það að fá að hitta pabba gamla aftur eftir langan aðskilnað.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig