Nú hefur Forbes gefið út lista yfir hæst launuðustu karl leikara Hollywood en listinn er tekinn saman frá maí 2011 til maí 2012.
Það væsir sannarlega ekki um þessa listamenn sem eru með fleiri, fleiri milljónir á ári í laun…
1.
Sjálfur Tom Cruise er á toppnum með hvorki meira né minna en 75 milljónir bandaríkjadala eða um tíu milljarða íslenskra króna!
2.
Í öðru sæti eru Leonardo DiCaprio og Adam Sandler jafnir með 37 milljónir dala eða tæpa fimm milljarða.
3.
Þriðja sætið hlýtur Dwayne Johnson “The Rock” og kappinn þénaði 36 milljónir dala.
4.
Ben stiller 33 milljónir dala eða um fjórir milljarðar.
5.
Sasha Baron Cohen 30 milljónir dala eða um 3.7 milljarðar.
6.
Johhny Depp var með 30 milljónir dala í árslaun eða um 3.7 milljarða króna.
7.
Will Smith 30 milljónir dala eða um 3.7 milljarðar.
8.
Mark Wahlberg vann sér inn 27 milljónir dala eða um 3.4 milljarða íslenskra króna.
9.
Taylor Lautner 26.5 milljónir dala eða um 3.2 milljarðar króna.
10 .
Robert Pattinson 26.5 milljónir dala sem er bara einfaldlega hellingur af peningum!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig