Stórleikarinn Tom Cruise kom við í kvöldþætti Jimmy Kimmel í vikunni og brá á leik í miklu stuði.
Jimmy Kimmel, sem stjórnar þættinum “Late Night With Jimmy Kimmel”, er þekktur fyrir að láta stórstjörnurnar flippa með sér í þættinum og stjörnurnar virðast vera til í að gera hvað sem er fyrir hann.
Tom var fyrir skemmstu að kynna nýjustu mynd sína sem nefnist “Jack Reacher” en þar leikur hann rannsóknarlögreglu sem kafar djúpt í mál sem tengist hermannaskyttu sem skaut fimm fórnarlömb án nokkurar ástæðu.
Myndin verður frumsýnd vestanhafs á morgun og það hefur verið meira en nóg að gera hjá Tom við kynningar á myndinni.
Á rauða dreglinum í London við frumsýningu myndarinnar tilkynnti hann að hann myndi eyða jólunum með öllum börnunum sínum þannig að Katie verður hugsanlega með foreldrum sínum um jólin líkt og á Þakkargjörðahátíðinni og Tom mun vera með Suri.
En, hér eru Jimmy og Tom að sulla saman…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig