Tom Cruise lætur ekki vaða yfir sig og hefur ákveðið að kæra tímaritið fyrir meiðyrði en blaðið lét þau orð falla að hann hefði yfirgefið Suri.
Lögmaður Tom sagði í yfirlýsingu að það væri ansi sterk lygi að segja að Tom hefði yfirgefið Suri. Tom er ástríkur faðir sem elskar Suri út af lífinu. Hún er stór hluti af lífi hans og mun alltaf vera það. Að blaðið skuli birta mynd af Suri með fyrirsögninni “yfirgefinn” er afar lélegt og særandi.
Tom er ekki vanur að vera að kæra fólk eða tímarit vinstri hægri en þarna gekk ritstjórnin of langt til þess að fólk myndi kaupa blaðið.
Tom vill fá 50 milljónir bandaríkjadala eða um sex milljarða íslenskra króna í skaðabætur vegna ummæla Life & Style og ef hann vinnur málið þá sýnir það og sannar að slúðurblöðin geta bara ekki birt hvað sem þeim sýnist og að það eru manneskjur á bakvið fyrirsagnirnar.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig