Eftir að hafa tekið maraþon fund með lögfræðingum sínum á laugardaginn hefur Katie Holmes loksins samþykkt það að Tom Cruise fái að hitta Suri -en þó undir eftirliti.
Tom og Katie skrifuðu undir sáttmála sem felur í sér að Tom fær umgengnisrétt við Suri en barnfóstra hennar og lífvörður verða ALLTAF að fylgja með og hún má EKKI koma nálægt neinu sem viðkemur Vísindakirkjunni, engar veislur, engar messur eða samkomur og svo framvegis.
Fjölmiðlafulltrúar þeirra gáfu út sameiginlega yfirlýsingu frá þeim báðum þar sem að þau segja að þau hafi aðeins hag Suri að leiðarljósi og þau vilja halda þessum hlutum á milli þeirra og lögfræðinga sinna, dótturinnar vegna.
Katie og Suri hafa þegar komið sér vel fyrir í New York og þaðan mun skilnaðurinn ganga í gegn en Katie verður að vera búin að búa í vissan tíma í New York til þess að fá skilnaðinn í gegn þar. Þær mæðgur hafa verið duglegar að flakka um borgina og fá sér ís saman, versla og svo framvegis og að sjálfsögðu fylgja papparassarnir þeim eftir hvert fótmál.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af þeim mæðgum í New York.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig