Umtöluðustu manneskjurnar í heimi Hollywood um þessar mundir eru án efa Tom Cruise og Katie Holmes.
Nú hefur komið fram að Tom bannaði Katie að leika í kvikmynd byggðri á þáttunum Dawsons’s Creek en það er þeim þáttum að þakka að Katie komst á kortið í Hollywood. Um þessar mundir er framleiðsla kvikmyndarinnar í bígerð.
Sagt er að Katie hafi verið komin með meira en nóg af ráðsmennsku eiginmannsins síns en hún var orðin ansi spennt fyrir því að leika í myndinni sem Tom taldi að væri skref aftur á bak í feli hennar -WHAT!?
Ég vona að við fáum að sjá Katie í hlutverki Joey aftur en hún sagði í sjónvarpsviðtali í fyrra að það yrði án efa skemmtilegt að hitta leikarahópinn aftur og fá að leika í myndinni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig