Leikarinn Tom Cruise er greinilega byrjaður að skella sér á stefnumót eftir skilnaðinn við Katie Holmes en hann sást í heitum dans við dömu að nafni Cynthia Jorge á dögunum.
Cynthia er framkvæmdarstjóri á veitingastaðnum Beauty & Essex en þau kynntust einmitt á þeim stað og lét Cynthia Tom fá nafnspjaldið sitt og hann varð yfir sig hrifinn við fyrstu sýn.
Tom og Cynthia skelltu sér á stefnumót um helgina og enduðu á næturklúbb þar sem þau dönsuðu heitt og innilega að sögn sjónarvotta, einhver hafði orð á því að þau hafi dansað eins og þau væru að leika í Dirty Dancing. Tom eins og sannur fagmaður á dansgólfinu og þau skemmtu sér afar vel saman.
Leikarinn knái virtist alsæll með lífið og brosti hringinn á meðan á stefnumótinu stóð.
Ætli að Cynthia verði næsta eiginkona Tom eða mun hann halda áfram á stefnumótamarkaðnum þangað til að “sú rétta” birtist (aftur)? Við bíðum spenntar!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig