Grammy verðlaunin voru haldin með pompi og prakt á sunnudaginn í skugga andláts Whitney Houston, Jennifer Hudson söng “I Will Always Love You” sem var án efa eitt vinsælasta lag Whitney heitinnar.
Adele kom fram í fyrsta sinn eftir að hún fór í aðgerð á hálsi í fyrra og olli hún ekki vonbrigðum. Nicki Minaj mætti með karlmann sér við hlið klæddann sem páfann og eru ekki allir alveg vissir með það hvað hún var að spá með þeim gjörning.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá rauða dreglinum.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig