Blúndan virðist koma sterk inn hjá stórstjörnunum og þær klæðast henni oft á rauða dreglinum.
Lituð blúnda er mikið í tísku núna og því skærari því betra. Kjólarnir eru í allskonar sniðum, stuttir, síðir, síðerma, flegnir eða alveg upp í háls. Dömurnar virðast frekar kjósa að vera í aðsniðnum blúndukjólum enda er eins og þú sért í gardínunum hennar ömmu þegar kjóllinn er of stór. Ekki smart.
Skoðaðu myndir af nokkrum frægum og flottum dömum í lituðum blúndukjólum -kannski færðu hugmynd að jólakjólnum?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig