Jæja kæru aðdáendur 50 Shades of Grey, kvikmyndin er að verða að veruleika og búið er að finna leikara í hlutverk Anastasiu og Christian Grey!
Leikararnir sem um ræðir heita Dakota Johnson og Charlie Hunnam. Dakota er dóttir Don Johnson og Melanie Griffith og hefur leikið í sjónvarpsþáttum sem heita Ben & Kate sem sýndir eru vestanhafs. Hún hefur einnig leikið í kvikmyndunum The Five-Year Engagement og 21 Jump Street.
Charlie Hunnam er þekktastur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum vinsælu Sons of Anarcy.
E.L James er höfundur bókanna er alsæl með valið á leikurunum og Twittaði sjálf stóru fréttirnar en margir þekktir leikarar hafa verið orðaðir við hluverk þeirra Christians og Anastasiu.
Hvað finnst þér um þetta hlutverkaval? Endilega segðu þína skoðun á Facebook síðu Pjattrófanna.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig