Ár hvert kemur út listi frá herratímaritinu Maxim yfir 100 heitustu konur ársins.
Í ár var það engin önnur en Miley Cyrus sem hneppti titilinn kynþokkafyllsta kjellan en margar sjóðandi heitar og sexý dömur komust inn á listann.
Að sjálfsögðu voru dömurnar boðnar og búnar að koma fram fáklæddar fyrir myndatöku því þeim finnst þetta afar skemmtilegur titill og margar hverjar hundfúlar að komast ekki ofar eftir allt erfiðið í ræktinni, sveltið og fleiri skemmtilegheit til þess að halda sér svona kynþokkafullum 😉
Hópurinn er frekar ungur þetta árið (eða kannski er ég bara að verða svona gömul?)… hér eru þær allavega.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig