Taylor Swift setti margar ungar stúlkur í “ástarsorg” þegar hún og Harry Styles byrjuðu saman en Harry er söngvari í vinsælu strákahljómsveitinni “One Direction”.
Harry og Taylor eru hætt saman núna en orðrómurinn segir að Taylor hafi ekki viljað ganga nógu oft lengra í bólinu með drengnum. Taylor hefur verið orðuð við ansi marga karlmenn undanfarið en vill alls ekki láta líta á sig sem druslu og hefur það því sem reglu að fara hægt í sakirnar. Taylor er ansi annt um ímynd sína út á við og strákarnir sem hún hefur verið að deita hafa fengið nóg af þessum töktum í henni.
Samkvæmt heimildum var Taylor, sem er 23 ára, ekki nógu virk á kynferðislega sviðinu og fékk Harry nóg af því að fá ekki “smá gott í kroppinn” annað slagið en það vantar ekki aðdáendur víðsvegar um heiminn sem væru glaðir að fá að knúsa kappann smá.
Harry nýtur þess að vera í sviðsljósinu þessa dagana og vill láta koma fram við sig eins og hann sé stórstjarna en Taylor vill halda í það að vera “góða stelpan” þrátt fyrir að vera alltaf með nýja og nýjan maka. Þetta væri eðlilegt og ekki skrítið ef hún væri 18-19 ára eða yngri en það er sjaldan hægt að reikna með að sambönd endist lengi ef það er aldrei stemmning fyrir því hjá fullorðnu fólki að “búa til ást”.
Eftir að parið hætti saman setti Taylor færslu á Twitter og skrifaði “Back in the studio. Uh Oh”. Taylor er þekkt fyrir það að skrifa og semja lög um sína fyrrverandi kærasta/elskhuga/knúsara og oftar en ekki hafa þau lög trónað efst á vinsældarlistunum.
Nú er bara stóra spurningin hvaða stórsmellur verður til úr þessum sambandsslitum?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig